Furðusagnahátíðin IceCon verður haldin helgina 28.-30. október 2016. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi furðusagnahátíð er haldin á Íslandi.

Markmið hátíðarinnar er að auka veg og virðingu furðumenningar og aðdáendasamfélaga á Íslandi og að gefa furðusagnaaðdáendum tækifæri til að hittast í þægilegu rými, þar sem þeir geta spjallað um sameiginleg áhugamál sín.

Dagskrá – taktu þátt!

Í grófum dráttum er dagskráin sú að föstudaginn 28. október hittumst við öll á barkvöldi (eftir að velja staðsetning). Á laugardeginum eru pallborðsumræður og grímuball og á sunnudeginum er hangover bröns og pallborðsumræður. 

Dagskráin mun að mestu snúast um bókmenntir en vonumst til að geta boðið upp á umræður um önnur efni sem tengjast furðumenningu. Það veltur þó á því að þau sem þekkja til anga furðumenningar og aðdáendasamfélagið bjóðist til að taka þátt í pallborðsumræðum.

Þau sem vilja taka þátt í pallborðum, hvort sem er sem gestir eða stjórnendur, eru hvött til að hafa samband í tölvupósti, á netfang icecon.reykjavik(@)gmail.com.

Hátíðin er haldin í Iðnó og fara umræður fram í stóra salnum á fyrstu hæð. Vonumst við til að þeir sem taki ekki þátt í umræðu geti fengið sér kaffi, te eða bjór á kaffihúsinu eða rölt um sýningarbása (sem munu líklegast vera á annarri hæð).

Allar pallborðsumræður fara fram á ensku.

Sum kunna eflaust að spyrja af hverju hátíð sem haldin er á Íslandi fari fram á ensku, en það er von okkar að þetta gefi erlendum gestum tækifæri til að taka þátt. Aðdáendasamfélög um furðumenningu eru mun eldri á í nágrannalöndum okkar og vonumst við því til að þessir nágrannar mæti á svæðið og kynni okkur fyrir furðumenningu sinna heimalanda!

Ráðstefnugjald

Ráðstefnugjald er 50 evrur fyrir helgina (inni í því er falið grímuball á laugardagskvöldi), og 20 evrur í viðbót ef þið viljið gæða ykkur á hangover bröns á sunnudeginum.

Sumum finnst kannski skrýtið að það kosti á svona atburð, en það kostar nokkuð að halda svona hátíð. Það er venjan erlendis að gestir greiði ráðstefnugjald á svona ráðstefnur (jafnvel þeir sem taka þátt í pallborðsumræðum). Aðeins heiðursgestinum er boðið á ráðstefnuna. Ráðstefnugjaldið fer í að greiða salarleiguna á Iðnó og flug og gistingu fyrir heiðursgestinn. Ef einhver hagnaður er á hátíðinni í ár, rennur hann til næstu hátíðar (við stefnum á 2018!) svo hún geti verið stærri. Öll undirbúningsvinna er unnin í sjálfboðastarfi.

Heiðursgestir

Heiðursgestir IceCon 2016 eru bandaríski rithöfundurinn Elizabeth Bear og sænski rithöfundurinn Karin Tidbeck.

Grímuball

Að lokum viljum við hvetja öll þau sem hafa áhuga á að mæta í búningum og taka þátt í grímuballi laugardagskvöldið 29. október. Verðlaun eru veitt fyrir besta búninginn.

Berum virðingu hver fyrir öðrum!

Þátttakendur á ráðstefnunni skuldbinda sig að sýna öðrum gestum virðingu í aðdraganda ráðstefnunnar, á ráðstefnunni sjálfri og í kjölfar hennar. Lesið Hegðunarreglur (e. code of conduct) fyrir IceCon.

Hver erum við?

Í undirbúningshóp ráðstefnunnar eru: Alexander Dan Vilhjálmsson, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Carolina Gómez Lagerlöf, Einar Leif Nielsen, Emil Hjörvar Petersen, Hildur Knútsdóttir, Jóhann Þórsson, Kjartan Yngvi Björnsson, Kristján Már Gunnarsson og Snæbjörn Brynjarsson.

Vitu vera memm í skipulagningunni? Hafðu samband á icecon.reykjavik(@)gmail.com!

Félagasamtökin IceCon – félag um furðusagnahátíð á Íslandi hefur verið stofnað til að halda utan um ráðstefnuna. Kennitala félagsins er: 630216-1250. Lesið lög félagsins hér. Athugið, að samkvæmt lögum félagsins rennur allur ágóði af ráðstefnunni beint til næstu ráðstefnu. Ef félagið er lagt niður, renna eignir þess til Rauða krossins á Íslandi.

Skráið ykkur á IceCon 2016!

Sjáumst öll í furðuheimum!

Fylgist með dagskránni hvernig hún þróast á Twitter eða Facebook!